Skólinn

Teikning af Fjólu og samnemendum hennar ásamt tveimur kennurum.

Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Nemendur eru u.þ.b. 520 og eru tvær til þrjár bekkjardeildir í hverjum árgangi. Í Háteigsskóla er leitast við að sníða skólastarfið í samræmi við eðli og þarfir nemenda. Stuðlað er að alhliða þroska og menntun hvers og eins og stutt er við jákvæða hegðun nemenda.

Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna, vellíðan.

Frístundaheimilið Halastjarnan er fyrir börn í 1.-4. bekk við skólann og félagsmiðstöðin 105 býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.

SkólastjóriGuðrún Helga Sigfúsdóttir

Aðstoðarskólastjóri: Ingunn Ásta Sigmundsdóttir

Deildarstjóri: Anna Sigríður Guðnadóttir

Deildarstjóri stoðþjónustu: Theodóra Skúladóttir

Námsráðgjafi: Áslaug Baldursdóttir

Skólastarfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Háteigsskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Háteigsskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi. 

  • Skoða skólanámskrá

Skólaráð

Skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Samkvæmt 8. grein laga um grunnskóla nr. 91/2008 skal starfa skólaráð við hvern grunnskóla.

Fulltrúar foreldra í skólaráði

Fulltrúar nemenda í skólaráði

  • Þorri Orrason
  • Eydís Anna Hannesdóttir

    Fulltrúar kennara í skólaráði

  • Guðmundur Lárus Guðmundsson
  • Kristófer Arnar Eiríksson

Fulltrúar starfsfólks í skólaráði

  • Björn Hjörtur Einarsson

Matur í grunnskólum

Skólamáltíðir eru gjaldfrjálsar veturinn 2024-2025 en mikilvægt er fyrir skólann að hafa áfram yfirsýn, halda utan um upplýsingar um ofnæmi og óþol og takmarka matarsóun. Því þarf eins og áður að skrá nemendur í mataráskrift.

Þeir nemendur sem voru skráðir í fyrra verða sjálfkrafa skráðir í áskrift en aðrir þurfa að skrá sig. Breyting á skráningu fer fram á matur.vala.is.

Teikning af Fjólu að borða mat í skólanum

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn.

 

Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi.

 

Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar. 

Teikning af Fjólu á leið í skólann ásamt fleiri nemendum og foreldrum

Mat á skólastarfi

Markmið mats og eftirlits með gæðum starfsins er m.a. að veita upplýsingar um skólastarfið, árangur þess og þróun.

Skólahverfi Háteigsskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og lögheimili barnsins ræður því í hvaða hverfisskóla það fer.

 

Barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. 

 

Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Háteigsskóla.