Foreldrastarf í Háteigsskóla

Markvisst er unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Í hverjum skóla er starfrækt foreldrafélag, foreldraráð eða skólaráð.

Foreldrafélag Háteigsskóla

Við Háteigsskóla starfar öflugt foreldrafélag sem hefur það að markmiði að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla.  Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.

Teikning af hjónum með ungling á milli sín.

Stjórn foreldrafélags 2026-2027

Bekkjarfulltrúar

Bekkjarfulltrúar í Háteigsskóla eru tengiliðir foreldra í árgangi við foreldrafélagið og skólasamfélagið. Þeir stuðla að samheldni, virðingu og góðum samskiptum með því að efla tengsl milli nemenda og foreldra, meðal annars með skipulagningu bekkjarkvölda og annarra viðburða utan skólatíma. Þeir aðstoða við skipulagningu viðburða á vegum skólans og foreldrafélagsins, miðla upplýsingum og hvetja foreldra til þátttöku. Einnig koma þeir að skipulagningu fjáröflunar og skiptingu verkefna innan árgangsins eftir því sem við á