Skólareglur Háteigsskóla

virðing - samvinna - vellíðan
Háteigsskóli hefur fengið nýjar skólareglur!
Skólastjórnendur í samvinnuvið Réttindaráð skólans settu í gang verkefnið við að vinna að nýjum skólareglum fyrir Háteigsskóla í vor.
Með einkunnarorð skólans - virðing- samvinna - vellíðan að leiðarljósiundirbjó Réttindaráðið kennslustund fyrir bekkinn sinn þar sem rætt varum gildi skólans og hvernig reglur nemendur gætu hugsað sér sem skólareglur.
„Við töluðum við bekkina okkar um reglur. Við spáðum í því hvernig væri hægt að bæta skólann, það gekk vel.“
Flestum í réttindaráðinu fannst ganga mjög vel að vinna með bekkjarfélögum sínum að skólareglum. Núna í haust eru svo reglurnar komnar í ramma og prýða veggi í öllum kennslustofum og ágöngum skólans.
„Við ræddum um hvað reglur eru og afhverju þær eru mikilvægar.“
Réttindaráðið og starfsfólk Háteigsskóla er afar stolt af afrakstrinum og þakkar öllum sem lögðu hönd á þetta mikilvæga verkefni.