Nám og kennsla
Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni, félagsfærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Unnið er með leiðsagnarnám á öllum stigum skólans. Skólastarfið byggir á teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahóp.
Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.
Mentor
Mentor er upplýsingakerfi fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans. Forsjáraðilar og nemendur fá aðgangsorð að Mentor. Á fjölskyldusíðunni sjá forsjáraðilar stundatöflur barna sinna, heimavinnu, námsmat, skólasókn og fleira.
Kennsluáætlanir
Í kennsluáætlunum er lýst inntaki námsins og námsmati sem gefa kennurum, nemendum og foreldrum yfirsýn um það sem fengist er við í kennslunni.
Námsmat
Markmið námsmats er að veita upplýsingar um árangur nemenda sem nýtist við að stuðla að frekari framfrum og örva nemendur til frekari dáða.
Námsmat nemenda er sýnilegt í Mentor.
Að vori fá nemendur í 4., 7., og 10. bekk námsmat með bókstöfum.
Nemendur í 1. - 3., 5. - 6. og 8. - 9. bekk fá framvindu einkunn að vori.
Kennsluhættir
Í Háteigsskóla er Nám fyrir alla þar sem borin er virðing fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda. Lögð er áhersla á teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi.
Viðmið um skólasókn
Mikil áhersla er lögð á stundvísi nemenda í skólanum. Öll börn og ungmenni á aldrinum 6 til 16 ára eru skólaskyld og bera foreldrar/forsjáraðilar ábyrgð á því að börnin innritist í grunnskóla, sæki skólann og stundi þar nám.
Ef misbrestur verður á skólasókn ber foreldrum/forsjáraðilum og skólanum að bregðast við. Til þess að þau viðbrögð verði sem árangursríkust hafa grunnskólarnir í Reykjavík sett sér samræmd viðmið og reglur sem þeir vinna eftir.