Svakalega lestrarkeppnin
Svakalega lestrarkeppnin
Í morgun fengu nemendur í 2.–6. Bekk í Háteigsskóla skemmtilega heimsókn þegar Blær Guðmundsdóttir og Eva Rún Þorgeirsdóttir kynntu Svakalegu lestrarkeppninnar.
Þær kynntu keppnina fyrir nemendum, fóru yfir fyrirkomulag hennar og reglurnar og sögðu frá því hvernig nemendur geta tekið þátt.
Nemendur sýndu mikinn áhuga á keppninni. Margar spurningar kviknuðu og nemendur voru áhugasamir um að vita meira um þetta skemmtilega lestrarátak.
Við hvetjum nemendur til að taka þátt, lesa sér til ánægju og njóta þess að uppgötva nýjar sögur og ævintýri í bókum!
Nánari upplýsingar um Svakalegu lestrarkeppnina má finna á vef Borgarbókasafns:
https://borgarbokasafn.is/svakalega-lestrarkeppnin-2026