Dagur íslenskrar tungu

mynd 1

 

Dagur íslenskrar tungu í Háteigsskóla

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu komu nemendur í 1.–4. bekk saman í sal skólans þar sem þau fengu að heyra um mikilvægi íslenskrar tungu, sögu dagsins og Jónas Hallgrímsson.
Að því loknu tóku nemendur lagið og sungu saman nokkur falleg og skemmtileg íslensk lög, meðal annars Hafið bláa hafið, Snert hörpu mína, Á íslensku má alltaf finna svar, Snemma lóan og Kærleikslagið.
Það var flott að sjá og heyra börnin fagna íslenskri tungu með söng og gleði.
 
mynd 2